Hverfisgata 50
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 14. mars sl. var lögð fram umsókn Plúsarkitekta f.h. lóðarhafa, dags. 15. ágúst 2007, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.0 vegna lóðar nr. 50 við Hverfisgötu skv. uppdrætti, dags. 14. ágúst 2007. Farið er fram á heimild til gerðar heillar hæðar í stað samþykktrar rishæðar og gerð þaksvala.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Hverfisgötu 46, 47, 49 ásamt Vatnsstíg 3 og 5.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Tillagan verður til kynningar í sal Skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 08:20-16:15 og á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir mál í kynningu.
Skoða tillögu (PDF)
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 3, 3. hæð, arkitekt vesturteymis er Margrét Þormar, símatími 9-10 alla virka daga utan miðvikudaga.
Kynning hefst þann 17. apríl og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 15. maí nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar