Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Reykjavíkurborg veitir styrki til velferðarmála

01.03.2010

Velferðarráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til átján verkefna á sviði velferðarmála. Heildarupphæð styrkjanna nemur tæpum 27 milljónum króna og við úthlutun þeirra er fylgt almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar og reglum velferðarráðs um styrkjaúthlutanir. Við val á verkefnum var miðað við að þau féllu að áherslum velferðarráðs og voru styrkir ráðsins til hjálparstofnana m.a. hækkaðir með hliðsjón af því.

Rúmlega fimmtíu aðilar, sem sinna verkefnum og þjónustu á sviði velferðarmála, eru með þjónustusamninga við Velferðarsvið eða njóta styrkja frá velferðarráði á árinu 2010. Í heild nema þjónustusamningar og styrkir á vegum ráðsins um 175 milljónum króna í ár.

Þau verkefni sem í dag hlutu styrk fyrir árið 2010 eru:

► Ás styrktarfélag
► Átak, félag fólks með þroskahömlun
► BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins
► Byggingafélag námsmanna
► Ferðafélagið Víðsýn
► Ferðaklúbburinn Flækjufótur
► Félagsstofnun stúdenta
► Fjölskylduhjálp Íslands
► Hhópurinn á Hátúnssvæðinu
► Höndin mannúðar- og mannræktarsamtök
► Klúbburinn Geysir
► Kvennaráðgjöfin
► Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
► Reykjavíkurdeild Rauða krossins
► Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
► Sjálfsbjörg – höfuðborgarsvæðið
► Styrktarfélag Alþjóða geðheilbrigðisdagsins
► Umsjónafélag einhverfra