Panorama mynd af Reykjavík


Hverfin í Reykjavík

Reykjavíkurborg er skipt í tíu hverfi (sjá samþykkt um hverfisráð). Í hverju hverfi starfar hverfisráð sem í eiga sæti þrír fulltrúar kosnir af borgarstjórn og jafnmargir til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna.


Hverfisráðunum er ætlað að stuðla að eflingu hvers konar hverfisbundins samstarfs og eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Í samþykkt sem gerð var í borgarstjórn þann 19. júní 2003 er kveðið á
um hlutverk ráðanna.


Nánari upplýsingar um einstök hverfi og hverfisráð má finna með því að velja hverfi hér að neðan en tenglarnir vísa á síður þjónustumiðstöðva í hverfi.

Panorama mynd af Reykjavík


Hverfaskipting Reykjavíkur


Hverfaskipting Reykjavíkur - smellið á kortið til þess að sjá stærri mynd

 smellið á kortið til þess að sjá stærri mynd

 

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is