Hæ! Hvernig getum við aðstoðað?
Efst á baugi

Hugmyndasöfnun um betri nýtingu tíma og fjármuna Reykjavíkurborgar
Alls bárust 265 tillögur í hugmyndasöfnun um betri nýtingu fjármuna Reykjavíkurborgar. Skipaður verður vinnuhópur sem mun fara yfir innsend álit og dregur saman helstu niðurstöður sem kynntar verða í fagráðum, borgarráði og borgarstjórn.
Sjá meira

Ábendingar um Reykvíking ársins óskast!
Borgarstjórinn í Reykjavík óskar í fimmtánda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar í borgarsamfélaginu. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins 2025.
Sjá meira

Námskeið og sumarstarf fyrir börn og unglinga
Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum í gegnum Völu frístund. Athugið að við skráningu þarf að nota rafræn skilríki.
Sjá meira

Vinnuskólinn
Skráning í Vinnuskólann er í gangi. Foreldrar skrá sína unglinga í gegnum rafrænt skráningarform. Öllum nemendum 8. 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni.
Sjá meira

Sendu okkur ábendingu
Á ábendingavef borgarinnar er hægt að senda inn ábendingu um hvað sem er. Allar ábendingar eru lesnar og flokkaðar af þjónustuveri og þeim komið til skila til þeirra sem hafa með málið að gera og þeir senda svar til baka.
Sjá meira